Tilgangur heimilisins kjarnast í einkunnarorðum þess og er hann að hvert barn hafi möguleika á að upplifa gleði þrátt fyrir aðstæður þess eða erfiðleika, að það geti lært að treysta öðrum og umhverfi sínu og upplifað kærleiksríka nánd.
Einnig er tilgangur og markmið heimilisins að vera athvarf og stuðningur fyrir þau börn sem eru í þeim aðstæðum að létta þarf álagi af barni og fjölskyldu og mynda þétt stuðningsnet með fagmönnum og fjölskyldunum sjálfum. Allar ákvarðanir og ráðstafanir eru byggðar á því hvað er barninu fyrir bestu.
Takmark starfseminnar og heimilisins er að börnin finni að þau eigi stuðningsfjölskyldu og þétt stuðningsnet í starfsfólki og er hugmyndafræði starfseminnar sú að líkja sem mest eftir venjulegu heimili.
Í dvöl sinni á heimilinu mun börnunum bjóðast auknir möguleikar til frístunda, upplifana og aðbúnaðar. Það mun svo vonandi skila sér í því að áhrif erfiðleika eða félagslegrar stöðu mun síður bitna á þeim í daglegu lífi og í framtíðinni. Við teljum einnig að með þessu náum við að rjúfa þá félagslegu einangrun sem mörg börn búa við sem þurfa á stuðningsfjölskyldu að halda.
Vinasetrið starfar með rekstrarleyfi frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV).
Saga Vinasetursins
Vinasetrið var stofnað árið 2012 að frumkvæði hóps mæðra sem kynntust þegar börnin þeirra voru saman í leikskóla. Í samtölum um líðan barna, áskoranir í daglegu lífi og skort á úrræðum fyrir börn sem þurfa stuðning, sem og fyrir fjölskyldur með takmarkað bakland, kviknaði hugmyndin að Vinasetrinu.
Mæðurnar deildu sameiginlegri sýn á mikilvægi þess að börn ættu kost á að upplifa hlýlegt, öruggt og stöðugt umhverfi. Út frá þessum samtölum mótaðist hugmynd um helgardvöl í anda stuðningsforeldra, þar sem börn koma saman í skipulögðu og hlýlegu umhverfi. Hugmyndin byggði á persónulegri reynslu og faglegri þekkingu og þróaðist fljótt í formlegt stuðningsúrræði.
Fyrstu árin starfaði Vinasetrið í Ásbrú, en árið 2017 fluttist starfsemin í Kaldársel. Samhliða flutningnum urðu eigendaskipti og reksturinn færðist til óhagnaðardrifinna félagasamtaka sem starfa á grundvelli æskulýðsmála. Í tengslum við þessar breytingar var ráðinn framkvæmdastjóri með starfsréttindi í félagsráðgjöf, að ákvörðun stjórnar, í ljósi eðlis starfseminnar og þarfa barnahópsins.
Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að skapa úrræði sem er laust við stofnanabrag en byggir á fagmennsku, stöðugleika og ábyrgð. Vinasetrið á rætur í grasrótar- og frumkvöðlastarfi en hefur í gegnum árin þróast og fest sig í sessi sem faglegt félagslegt nýsköpunarúrræði í velferðarþjónustu við börn og barnafjölskyldur. Starfsemin er rekin án hagnaðarsjónarmiða, þar sem gæði og traust eru höfð í fyrirrúmi.
Þróun starfseminnar hefur átt sér stað í samstarfi við félagsþjónustu sveitarfélaga og annað fagfólk og byggir á reynslu, faglegri þekkingu og daglegu starfi. Grunnurinn hefur ávallt verið sá sami: að raunverulegur stuðningur verði til í tengslum, samveru og stöðugu umhverfi sem börn geta treyst.

Ef þú þarft frekari upplýsingar, þá er þér velkomið að senda okkur tölvupóst á vinasetrid@vinasetrid.is eða hafa samband í síma 895 0250.
