Starfsfólk Vinasetursins

Framkvæmdastjóri og félagsráðgjafi

Guðrún Elva Arinbjarnardóttir er framkvæmdastjóri og félagsráðgjafi Vinasetursins og jafnframt löggiltur náms- og starfsráðgjafi. Hún hóf störf í Vinasetrinu árið 2017 þegar starfsemin fluttist í Kaldársel og hefur síðan leitt uppbyggingu, mótun og þróun starfseminnar.

Guðrún Elva hefur áratuga reynslu af störfum með börnum og fjölskyldum. Hún starfaði í um tíu ár sem skólafélagsráðgjafi og náms- og starfsráðgjafi í grunnskóla og hefur jafnframt veitt sjálfstæða ráðgjöf til foreldra og barna í flóknum málum, meðal annars á sviði uppeldisráðgjafar og skólaforðunar.

Auk þess hefur Guðrún Elva komið að málsvörn nemenda í samstarfi við foreldra og skóla, þar sem áhersla hefur verið lögð á réttindi barna, hagsmuni þeirra og lausnamiðaða samvinnu. Þessi reynsla hefur mótað faglega nálgun hennar og styrkt skilning á því hvernig best er að styðja börn í krefjandi aðstæðum, í nánu samspili við fjölskyldur, skóla og annað fagfólk.

Starfsfólk Vinasetursins

Í Vinasetrinu starfar fjölbreyttur og reynslumikill starfsmannahópur. Lögð er áhersla á stöðugleika í starfinu og er starfsmannavelta lítil, sem stuðlar að samfellu og trausti í þjónustunni.

Yfirleitt starfa 6–7 starfsmenn saman hverja helgi. Samvinna innan hópsins er mikilvæg og starfsfólk þekkir vel starfshætti Vinasetursins og vinnur saman að því að skapa öruggt og stuðningsríkt umhverfi fyrir börnin.

Starfsfólk kemur úr ólíkum faglegum áttum, meðal annars kennslu, sálfræði, félagsvísindum og heilbrigðisgeiranum. Sú faglega þekking er mikilvægur grunnur í starfinu. Megináhersla er þó lögð á að starfsfólk mæti börnum fyrst og fremst sem manneskjur, í daglegu lífi og samveru, fremur en í formlegu hlutverki fræðinga, ráðgjafa eða kennara.

Allt starfsfólk Vinasetursins þarf að skila inn hreinu sakavottorði áður en störf hefjast.

Ef þú þarft frekari upplýsingar, þá er þér velkomið að senda okkur tölvupóst á vinasetrid@vinasetrid.is eða hafa samband í síma 895 0250.